Sporin

Tólf reynsluspor S.L.A.A.

1.  Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart ástar- og kynlífsfíkn og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.

2.  Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.

3.  Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá Guðs, samkvæmt skilningi okkar á Guði.

4.  Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.

5.  Við játuðum misgjörðir okkar fyrir Guði, sjálfum okkur og annarri manneskju og nákvæmlega hvað í þeim fólst.

6.  Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina.

7.  Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.

8.  Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús til að bæta fyrir þær.

9.  Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan.

10.  Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af bar viðurkenndum við yfirsjónir okkar umsvifalaust.

11.  Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband okkar við Mátt æðri okkur sjálfum og báðum um það eitt að vita vilja Guðs og hafa mátt til að framkvæma hann.

12.  Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum ástar- og kynlífsfíklum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum á öllum sviðum lífs okkar.

©1985 The Augustine Fellowship, Sex and Love Addicts Anonymous, Fellowship-Wide Services, Inc. Allur réttur áskilinn. Reynslusporin tólf eru birt og aðlöguð með leyfi heimsþjónustu A.A. samtakanna. Leyfið til þess að birta og aðlaga reynslusporin tólf er þó ekki til marks um að A.A. samtökin séu tengd þessari bataleið. A.A. er eingöngu leið til þess að ná bata frá áfengisfíkn. Notkun reynslusporanna tólf í tengslum við bataleiðir og athafnir, sem taka mið af A.A., en taka á öðrum vandamálum, eru ekki til marks um annað.

Tólf erfðavenjur S.L.A.A.

1.  Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins er undir einingu S.L.A.A. samtakanna kominn.

2.  Í málum deilda er aðeins einn leiðtogi, kærleiksríkur Guð, eins og þessi máttur getur birst í samvisku hvers hóps. Forsvarsmenn okkar eru þjónar sem við treystum en ekki stjórnendur.

3.  Til þess að gerast S.L.A.A. félagi þarf aðeins eitt: Löngun til að hætta að lifa í mynstri ástar- og kynlífsfíknar. Hvaða tveir eða fleiri einstaklingar, sem koma saman til að hjálpa hver öðrum til að ná bata frá ástar- og kynlífsfíkn, mega kalla sig S.L.A.A. deild svo framarlega sem hópurinn hafi engan annan tilgang.

4.  Sérhver S.L.A.A. deild á að vera sjálfstæð nema í málum er varða aðrar deildir eða S.L.A.A. samtökin í heild.

5.  Sérhver deild hefur aðeins eitt meginmarkmið: Að flytja ástar- og kynlífsfíklum sem enn þjást boðskap samtakanna.

6.  S.L.A.A. deild eða S.L.A.A. samtökin í heild ættu aldrei að ljá öðrum samtökum eða málstað nafn sitt, fjármagn, fylgi eða lausafé, svo eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki upphaflegum tilgangi.

7.  Sérhver S.L.A.A. deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi fjárhagsaðstoð.

8.  Félagar í S.L.A.A. samtökunum eru ætíð einungis áhugamenn, en þjónustustöðvar okkar mega ráða launað starfsfólk.

9.  S.L.A.A. samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja en við getum myndað þjónustunefndir og ráð sem eru ábyrg gagnvart þeim sem þau starfa fyrir.

10.  S.L.A.A. samtökin taka ekki afstöðu til annarra mála en sinna eigin. Nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras.

11.  Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlöðun en ekki áróðri. Við þurfum ávallt að gæta nafnleyndar í blöðum, útvarpi, sjónvarpi, kvikmyndum og öðrum fjölmiðlum. Við þurfum sérstaklega að varðveita nafnleynd allra félaga okkar í S.L.A.A.

12.  Nafnleyndin er andlegur grundvöllur allra erfðavenja okkar og minnir okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag.

©1985 The Augustine Fellowship, Sex and Love Addicts Anonymous, Fellowship-Wide Services, Inc. Allur réttur áskilinn. Erfðavenjurnar tólf eru birtar og aðlagaðar með leyfi heimsþjónustu A.A. samtakanna. Leyfið til þess að birta og aðlaga erfðavenjurnar tólf er þó ekki til marks um að A.A. samtökin séu tengd þessari bataleið. A.A. er eingöngu leið til þess að ná bata frá áfengisfíkn. Notkun erfðavenjanna tólf í tengslum við bataleiðir og athafnir, sem taka mið af A.A., en taka á öðrum vandamálum, eru ekki til marks um annað.