Inngangsorð

SLAA er félagsskapur byggður á grunni tólf reynsluspora og tólf erfðavenja AA-samtakanna.  Eina skilyrðið fyrir þátttöku í SLAA er löngun til að hætta að lifa í mynstri ástar- og kynlífsfíknar.  SLAA-samtökin eru alfarið rekin með frjálsum framlögum meðlima og eru opin hverjum þeim sem þarfnast þeirra.

​Til að sporna við hinum mannskemmandi afleiðingum ástar- og kynlífsfíknar beitum við fimm meginúrræðum:

1. Fráhald.  Fúsleiki okkar á hverjum degi til að hætta að ástunda botnhegðun okkar.

2. Trúnaðarmennska / Fundir.  Geta okkar til að leita eftir stuðningi félaga í SLAA.

3. Reynslusporin.  Ástundun okkar á tólf spora bataleiðinni til að ná heilbrigði á kynferðis- og tilfinningasviðinu.

​4. Þjónusta.  Endurgjöf okkar til SLAA-samfélagsins fyrir allt sem við höfum fengið.

​5. Andlegt líferni.  Þróun sambands okkar við Mátt æðri okkur sjálfum sem getur leiðbeint og haldið okkur í bata.

Sem félagsskapur hafa SLAA-samtökin enga skoðun á utanaðkomandi málefnum og blanda sér ekki í opinber deilumál.  SLAA-samtökin eru ekki tengd neinum öðrum samtökum, hreyfingum eða stefnumálum, hvort sem þau eru trúarleg eða ekki.  Við sameinumst hins vegar um það markmið að takast á við ávanabindandi hegðun í ástar- og kynferðismálum.  Við glímum öll við mynstur áráttu- og þráhyggju sem gerir muninn á kynferði okkar og kynhneigð að aukaatriði.  Við þurfum sérstaklega að vernda nafnleynd allra SLAA-félaga.  Einnig reynum við að forðast að vekja óþarfa athygli á SLAA í heild sinni í opinberum fjölmiðlum.